Ef þú ert ekki hann, þá er hann einhver annar! A.K.A Jónas
09.09.2007 12:58:11 / tristan

Vá hvað það er langt síðan ég bloggaði marr.....

Jæja... þá er nú komið að því að skrifa eitthvað smá blogg hérna.. ég hef ekki skrifa í allt of langan tíma...... Það nýjasta á döfinni er nú einsog flestir sem þekkja mig vita að ég er búinn að ná að útskrifast frá Verkmenntaskólanum á Akureyri með stæl, ég tók þetta með þvílíku trompi... :) í sumar var ég svo að vinna uppí bárðardal og meikaði það í tamningarbransanum bara nokkuð vel..... og það var þvílíkt stuð..... Við gerðum margt af okkur við Erlingur, í hestaferð sem við fórum í, og Rakel elskan kom með í um versló er við héldum uppá eins árs afmæli okkar í sambandi var rosa stuð, meðal annars var hin fræga stripprútina tekin, ATH ég var mjög ölvaður....... en mikil skemmtun var og einsog á besta skemmtistað... Einsog ég skrifaði hér fyrir ofan höfum við Rakel nú verið saman í heilt ár, vá hvað tíminn er fljótur að líða...... ég sé ennþá ekki sólina fyrir henni og hún er allt sem maður gæti óskað sér....... Hún er núna útá Rodos í útskriftarferð og ég get ekki beðið eftir því að fá hana heim aftur og knúsa hana í örmum mér... Soldið væmið,, ég veit..... :) Nú á dögunum er ég kominn í Háskólann á Hólum, er á fyrsta ári... geggjað fínt að vera þar..... en maður saknar samt gömlu góðu daganna í VMA.......... Íbúðin min er samt orðin að aðal partyplacinu... :) ég mun svo reyna að blogga reglulega og halda ykkur up 2 date... :) Byó... :)

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 00:03:35 / tristan

Árshátíð og Úrtaka fyrir Framhaldsskólamótið í Hestaíþróttum

Góðan og BLÉSSSAÐAN......

 

Blogg blogg og meira blogg, það er aldrei hægt að fullnægja þörfum ykkar í þessum málum.

 

Síðastliðna daga hefur nú aldeilis verið nóg að gera hjá mér, ég var lagður inn á spítala og læti, en núna er maður alveg búinn að ná sé og við Rakel erum alveg við það að fagna 7 mánaða sambandi, eða ég held að það séu 7, en þú veist, hver telur :)

 Á döfinni hjá mér núna hef ég verið að missa mig í gleðinni, það er árshátíð frammundan og ég get ekki beðið, vá hvað þetta verður geggjað, allir þeir sem lesa þetta og eru á norðurlandi, farið og kaupið ykkur miða því að þetta er eitthvað sem enginn ætti að missa af. Til gamans má segja ykkur frá því að MIB eða Í Svörtum Fötum ætla að koma saman og spila einu sinni sérstaklega fyrir okkur. Það eru margar kenningar í gangi um það hvernig við höfðum reddað þeim en bara til að leiðrétta allan misskilning þá gerði ég ekki NEITT sem um hefur verið rætt. :)

 Í dag og á morgun eru grunnskólakynningar og er ég að missa mig í tauinu og mætti í svaðalega fínum fötum í dag, og leið geggjað kjánalega, en ég er að venjast þessu.

 Um helgina var samt rosa stuð og hún Ester vinkona mín kíkti norður, ef einhver sá gellu á laugardagskvöldið blindfulla liggjandi fyrir utan Fargo að ÖSKRA; MIG VANTAR BÍL, á sænsku í þókkabót, þá þekkji ég hana ekki. ;) en það var rosa stuð hjá okkur og við skelldum okkur auðvitað að horfa á Mývatn OPEN.

Einsog flestir vita er ég líka á fullu í hestamennskunni og nú er næst á dagskrá svokallaða Framhaldsskólamót í Hestaíþróttum sem fer fram í Víðidalnum fyrir sunnan. Í fyrra vann FSU sem er gamli skólinn minn og var ég í liðinnu, þannig ég á titil að verja en núna með öðrum skóla, það verður gaman að sjá hvort að við náum ekki að koma bikarnum norður.

 

en nóg um það, ég ætla að fara að halla mér með konunni þar sem að þessi 7 mánuðir eru komnir í hús, skrifið eitthvað sætt og njótið lífsins, þið lifið bara einu sinni.....

 

p.s. fyrir þá sem halda að ég sofi ekki nóg, þá er það alveg RÉTT, en maður verður að njóta lífsins til fulls, og þegar maður er að reyna að gera ALLT í einu bæði á Nemó, skólanum og hestamennskunni og auðvitað má ekki gleyma krullunni, þá getur maður ekki alltaf sofið...

 

P.s.s og svo er konan auðvitað með sinn skammt, en hann er oftast skemmtilegastur;)

 

Bless í bili... BYÓ.......... ÁRSHÁTÍÐ..... ;) OJÁ


» 13 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 15:34:29 / tristan

Söngkeppni

Það er aldeilis orðið langt síðan að maður bloggaði síðast...

 

Ég ákvað að henda einhverju hérna inn til að fólk gæti aðeins fylgst með þessu.....Það sem hefur verið á töfinni er að faðir minn er náttúrulega farinn til Ástralíu og maður svona að bíða spenntur eftir að fara þangað í sumar....

EN það nýjasta nýtt er að maður er orðinn Formaður Þórdunu og að maður tók þátt í söngkeppninni með geggjað töff atriði, New York New York... með snildar band og þetta var alveg ótrúlega gaman... TAKK Stráka í brasbandinu sem leitu þetta rætast.. og auðvitað hann Sigurður Helgi sem ýtti þeim á ýstu nöf.... og allir sem komu að þessu.....

 

Þessi keppni var algjör snild og Eyþór bar sigur úr býtum og átti það svo sannarlega skililð...

Núna er keppni á morgun í Skautahöllinni en ég er veikur og er bara allt of þreyttur...... 'eg vona að maður nái sér sem fyrst.. skrifið nú eitthvað sætt og ég skal reyna að láta ykkur fylgjast betur með mér næstu daga, mánuði og ár.. ;)

 

Byí


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 00:16:43 / tristan

Þá er þetta allt að hefjast....

Já góðir gestir, vikurnar líða og skólinn er kominn í fullt skrið... nú má segja að allt sé komið í jafnvægi þegar MA mætti hérna til leiks og dag og skólinn þar var settur. En við VMAingar erum náttla búnnir að hafa aðeins lengri tíma til að aðlaga okkur og erum komnir talsvert lengra af stað með skólaárið. Sumir vita eflaust sumt að því sem ég er að fara að segja, en fyrir þá sem vita það ekki þá hafði þið tækifæri til að lesa þetta hérna. Ég er kominn aftur norður í VMA og er á vistinni og ætla mér að klára þetta hérna með stæl. Sumarið hjá mér var nokkuð gott þar sem vinna var í fyrirrúmmi og ekki mikið að segja frá því.... Hestamennskan gekk vonum framar bæði á landsmóti og á öðrum vígavöllum svo sem einarsstöðum þar sem ég á ekki til orð yfir heppninni ef svo má kalla sem dundi yfir okkur Flygill þar..... Ekki gerðist neitt gígantískt í sumar nema hvað um Versló er kannski vert að nefna að ung snót heillaði mig uppúr skónum (bókstaflega) Rakel Guðjónssdóttir að nafni og er á 3 ári í MA og segja má að við höfum ekki slitið frá hvort öðru síðan. ;) á góðri íslensku þá erum við orðin par og ég er allavega mjög hamingjusamur, ef þið viljið heyra hennar hlið verðið þið bara að spurja hana ;) Busun gekk frábærlega í VMA, ég og Gauti (Yfirböðull) misstum okkur algjörlega í gleðinni. Ég fékk að halda Busaræðu og stjórnast helling í þessu enda má segja að við Gauti höfðum stjórntaumana í okkar höndum... ég bendi á myndir á www.thorduna.is sem er allar komnar inn... mjög skemmtilegt að glöggva í þær. :) Í framhaldinu á busunninni var ég kosinn í nemendaráðið, mér til mikillar undrunar þar sem ég átti enga von á því að vera kosinn, en núna er maður bara kominn á fullt í starfsemi skólans, innan sem að utan og líkar mjög vel við.... og húmorinn hjá okkur í nefndinni er svo sannarlega að komast á fullt skrið og hlakkar mig mjög mikið til áframhaldandi vinnu í því..... Núna er maður bara að læra og læra en ég mun halda þessari blogg síðu einsog hún á að vera, eða var áður en sumarið byrjaði, í góðu standi... :) Góðir gestir, James is back, and loving it... ;) skrifið eitthvað sætt... bless í bili. P.s. Þið sunnlendingar sem villist hérna inn teljast líka með... ;) :) Byó... I know where you live

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 23:54:31 / tristan

Biðinn er senn a enda og síðan fer brátt aftur í fulla brúkunn........

Góðir gestir, nú fer að styttast í að bloggið mitt tekur af skarið á ný með góðum sögum frá sumrinu. ..... James

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 19:27:20 / tristan

Trallalallllallla.....

Shit hvað það er langt síðan ég hef bloggað.. og bara komist á netið yfir höfuð... það er nú lítið að frétta af mér nema það að ég er byrjaður að vinna alveg einsog brjálæðingur... :) Venjulegur dagur hjá mér er vakna uppúr 7.... fara í vinnuna í Laxárvirkjun og er þar búinn að vera að klippa runna í nokkra daga núna.. og ég sver það ef ég sé óklipptan runna þá kveikji ég þeim.. hehe.. ég er alveg kominn með nóg af runnum.... :) Síðan er ég búinn að vinna kl 5.... keyri einsog mother fucker til Húsavíkur á MFL æfingu með völsungi og síðan er hún búin uppúr 7 til 7:30... strax eftir æfingu byrja hestarnir að hneggja á mann og maður verður að gefa og fara á bak og solles... kominn heim uppúr 10-11 ef ég fer ekki í ostakarið það er að segja... :) En já.. Harpa út á Búlgaríu að skemmta sér og ég sakna hennar geggjað...,... ekki búinn að heyra í henni svo lengi.. en hún kemur heim á fimmtudaginn og þá ætla ég að reyna að hitta hana áður en ég fer út á spán..... :) En já.. ég læt þetta gott heita í bili... þið vitið nrið mitt... ég er kominn með nýjan síma og læti maður.. :) við heyrumst... það er að segja ef þið heyrið í mér.. :) Byó... Chao... ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 21:45:11 / tristan

Ég er kominn í Sumarfrí og bloggið hefst aftur..... HELL YA... meða annars, öklabrot, og margt fleira....

Það var líka kominn tími til, ég var með einhverjar andskotans yfirlýsingar um það að núna mundi koma á næstunni eitthvað rosa blogg en svo virðist sem að prófin hafi haft yfirhöndina og ég hef bara ekki haft neinn tíma til þess að blogga.

Það hefur heldur mikið dregið til tíðinda síðust vikur og er bara best að við byrjum byrjuninni.

Arnþór hefur verið í Rvk síðustu vikur og var ákveðið að slá á létta strengi og hittast og gera eitthvað saman. Það var þá ákveðið fyir rúmum 3-4 vikum síðað að hittast og kíkja í Keilu. Ég, Harpa og Arnþór kíktu og skemmtum okkur konunglega nema hvað að James eins óður, nei ég meinti góður í keilu tókst mér að öklubrjóta mig, en það kom ekki í ljós fyrr en daginn eftir...... Þannig ég hef verið í stífri sjúkraþjálfun og uppbyggingu og er orðinn mjög góður aftur núna......

Annað vandamál er að síminn minn gamli er ónýtur eða eitthvað í rugli þannig ég get ekki hringt í neina af vinum mínum því að nrin eru öll í gamla símanum.. ENDILEGA SENDIÐ MÉR SMS með NR og nafni svo ég geti heyrt í ykkur... :)

Prófin hafa dunið yfir með nokkurri hörku en síðustu helgi var ákveðið að skella sér út á lífið..... Ég Arnþór og Harpa skelltum okkur út að borða í Rvk á stað er heitir The Red Chili og var borða algjöran veislu mat... ojá.... síðan fórum við í bíó á SCARY MOVIE 4.... hún er HRÆÐILEG... við hlógum svona 5x allt í allt... mælum EKKI með henni, allavega ekki í bíó.....

Laugardagskvöldið var svo haldið á Ball í Hveragerði, þar var mikið djammað, til að byrja með virtist sem að allt kvöldið mundi fara til fjandans þar sem ömurlegu dyraverðirnir vildu ekki hleypa Arnþóri inn, vegna óskýrar myndir og eitthvað blablalbalala... til allra lukku kom mamma Hörpu og reddaði málunum og var dansað og djúsað fram á rauða nóttina... Næsta dag ætluðum við bara að taka því rólega en þar breyttist planið þegar viss einstaklingur, nefnum hann ekki nafni ákvað að leiga sumarbústað, og margt fleira skemmtilegt og var haldið þangað í party..... MEGA STUÐ.... til að byrja með vorum við 4x karlmen einir sitjandi með bjór í hendi og í mega þunglyndi.. en síðan uppúr 12 flikktist að kvenfólkið....... þetta var MEGA STUÐ......

Næsta morgun var tiltekt og að koma hlutunum aftur á réttan kjöl og tókst að allt fyrir rest.... síðan má segja að prófin og hestamennskan hafi verið i brennideplinum og undirbúninur fyrir norðurferð og náttla að vera spilahæfur fyrir leikina sem eru frammundan..... nema hvað.. þá þurfti bílinn að bila... jamm... ég veit... en svona er etta.... hann verður orðinn góður ettir nokkra daga... en já... þetta er þa sem hefur verið að hrjá mig síðustu 2x vikur og aðeins lengur reyndar.. hehe... Endilega samt sendið mér sms með nrin ykkar svo að ég geti reddað hlutunum..... :)

og allir saman nú hehe... SUmaRið eR koMIÐ og ALLt að fARAð byrja... heyrumst... BLESS... :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 22:45:04 / tristan

Smá pæling áður en bloggið kemur, allir að svara :)

Ljótur? Vinalegur? Þögull? Hávær? Feiminn? Skrýtinn? Sjálfselskur? Villingur? Brjálæðingur? Sætur? Heimskur? Vinur? Meira en vinur? Leiðinlegur? Fallegur? Vitur? Ruglandi? Fyndinn? Spurningar :: Síminn minn er ? Er ég á föstu ? Hvenær á ég afmæli ? Hver er besti vinur minn ? Hvar hittumst við ? Hefur þig einhvern tímann dreymt um mig ? Lýstu mér í 3 - 5 orðum? Ef þú mættir spyrja mig að hverju sem er , hverju myndiru þá spurja mig að ?

» 13 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 14:47:26 / tristan

Kominn á Klakann fyrir norðan.....

Hann er kominn norður á klakann..... :) Ojá góðir gestir, þið lásuð rétt.... þann 10 Apríl hélt ég norður í flugi með Flugfélagi Íslands og lenti á Akureyri kl 6. Það fyrsta sem hitti mig var SNJÓR, og það HELLINGUR AF HONUM...... maður fór nú að spá í því hvort að maður hefði ekki bara átt að koma á Mussoinum hingað til að komast frá einum stað og til annars, en þetta slapp nú allt saman.... Á þriðjudag var haldið til Húsavíkur og hitt Huldu systu, Örnu systu, og Kittu, og Elínu og FULLT AF FÓLKI.. og ekki má gleyma Atla heldur.... það var ekki smá gott að sjá þau öll aftur.. maður hefur nú svo sannarlega saknað þeirra allra.... síðan var haldið á fótboltaæfingu og hitti maður SIGGA.. ojá.. siggi var nú svo sannarlega góð sjón að sjá... ekki búinn að sjá hann í langan tíma og rifjuðum við upp alla góðu tímana og færðum hvor öðrum fréttir........... ég var síðan í húsavík þetta kvöld og fór á leikrit, helvíti magnað... endaði síðan á að fara í bílafeluleik sem við unnum auddað... :) Það hefur nú margt gerst hjá kaglinum líka fyrir sunnan... ég hef t.d. verið að missa mig á píanóinu hjá Heiðrúnu... ojá.. helvíti mikið stuð á þeim bæ og einsog Heiðrún sagði þá erum við LIKE THIIISSS... hehe ;) það var ball með í svörtum fötum á föstudagskvöldið síðastliðið og var mega stuð.... einnig er vert að nefna að maður skemmti sér konunglega um helgina.. en ég ætla nú ekki að segja frá ú smáatriðum hvað var gert.... það kemur bara einhverntíman seinna.... Núna er ég að reyna að hitta alla sem ég mögulega get.. á morgun er ferðinni haldið til AKUREYRI þar sem ég ætla að reyna að hitta hana Berglindi.. ég hef saknað hennar geðveikt.... og bara allra vina minna... ég er að fara uppí Hlíðarfjall og segja má að óvæntur glaðningur bíði síðan..... þar sem vita hvað ég á við vita hvað ég á við :) eða einsog sagt er. takið þetta til ykkar sem vita hvað ég á við.... Þetta verður algjör snild..... síðan er málið að reyna að hitta fleiri.. Gústa, Valla, böðvar Arnþór og Jónas jú.. og síðast en ekki síst... BJÖRGVIN ÓLA.... shitturinn,... það er orðið alltof langt síðan að við höfum komið saman... og því er um að gera að reyna að hitta gengið...... En ég ætla nú líka að reyna að hitta Berglindi Ýr og Arneyju ef tími gefst til.. en maður verður bara að bíða og sjá.. síðan eru nú mun fleiri sem koma til greina að hitta... einsog Gulli og ÚLLA... það er sko nóg af fólki sem maður þarf að hitta.. og alla þá sem ég næ ekki að hitta núna verður bara að bíða þangað til sumarsins...... þetta verður samt alveg mega stuð... endilega heyrið í mér þér sem eru á ferðinni og við reynum að slá saman strengjum.... en nóg í bili.... ELSKA YKKUR ÖLL.. þið eruð frábær.... P.s. Það er gott að vera kominn heim..... Kv. James Byó.. going, going, GONE... :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 13:36:40 / tristan

komið blogg... ;)

Jæja... margt að gerast.. margt að gerast.... Framhaldsskólamótið kláraðist og segja má að allt hafi heppnast frábærlega. Við unnum aftur mótið í heildina og var mikill fögnuður. Sumir hafa verið að kvarta undan því að það vant nýtt blogg, þannig hér kemur svona eitthvað yfirlitt....  Það er margt að gerast, prófin að nálgast, páskafríið og allt að verða vitlaust hér á Selfossi...... Það sem er merkt að segja frá mér er að ég skemmti mér alveg konunglega á framhaldsskólaballinu, það reyndar endaði illa þar sem einhver gaur braut rúðu í húsinu og öllum var hent út uppur eitt, akkúrat þegar fólkið var virkilega byrjað að skemmta sér... Ég hitti fullt af fólki og vert að nefna MA –ingana Þóru og Oddnýju..  gaman að hitta þær attur... Hvað meira... jújú... GETTU BETUR.... Ég hef nú ákveðið að ég þurfi líklega að mæta á úrslitaþáttinn líka... ;) Djöfull var það spennandi maður.. ég hélt að ég mundi deyja.. en einhvernveginn ná strákarnir ALLTAF að bjarga sér og koma út með sigur.... Gaman var nú að hitta allt liðið aftur eftir langa og erfiða bið... en núna á fimmtudaginn eiga allir að mæta og hvetja strákana áfram... Það hefur nú ekki eitthvað geggjað mikið verið að gerast hjá mér... vert að nefna að ég kíkti á Körfuboltaleik um daginn... helvíti góð skemmtun..... og síðan hef ég reyndar bara verið að vinna og læra... jú.. ég er til allra hamingju stíginn uppúr meiðslum og er byrjaður að æfa aftur á fullum krafti.........  En já.. páskafríið að nálgast og svo fer nú að styttast í sumarfríið..... ég segi hæj við alla fyrir norðan og skrifið nú einhvern komment.. áfram svona.. ;) Bless.... P.s. það var reyndar ball hérna um daginn, Jet black joe voru að spila.. en ég hafði öðrum hnöppum að hneppa.....

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 15:28:26 / tristan

FUCK YA ..... :)

Góðir Gestir, nú hef ég svo sannarlega fréttir að færa... AHA... hlustið nú vel... :) Sumir heyrðu kannski um Framhaldsskólamótið í Hestaíþróttum sem framm fer núna um helgina...... og þannig hefur nú málið þróast að ég fór í úrtökuna og komst inn sem varahestur, sem þýðir að ef einhver hestur meiddist þá mundi ég komast inn í staðinn... skilju.. aha.. ok.. gott..... Hver mundi trúa því að hestur myndi meiðast fyrir svona mót.... þú veist.. maður hefði nú haldið að þetta yrði nú alveg pottþétt og að maður kæmist ekkert að.... En viti menn... hvað haldið þið að hafi gerst... jú... mikið rétt... hesturinn fór til tannlæknis og þá kom í ljós að hann væri ekki í sem besta ásemkomulagi í kjaftinum og því þurfti hann að fá vikna frí sem þýðir að hann getur ekki tekið þátt í mótinu... SEM ÞÝÐIR AÐ ÉG OG FLYGILL ERUM AÐ FARAÐ KEPPA NÚNA... Ojá.... hvað haldið þið.. kaglinn er kominn af stað.. :) Núna er mál með vexti að við erum í stífri þjálfun fyrir mótið.... og allt að gerast... þetta er líka ekki smá mót... FSu vann í fyrra og því er ætlast til mikla hluta núna í ár frá þessu gríðarsterka liði... og kaglinn bara í því.. geggjað.. :) Mótið er ekki af verri skammtinum.. maður þarf að fá frí í skólanum á Föstudaginn... því mótið byrjar þá... síðan er það ALLA helgina... með balli og þetta verður bara GEGGJAÐ STUÐ.. ójá.... Ætlaði bara að skirfa eitthvað sniðugt.. og ákvað að uppfræða fólk um málin.. :) En já.. ég ætla að drífa mig.. þarf að fara ríða út.... og solles.... kommentið nú eitthvað sniðugt... :) Byó... LATER... SEE YA

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 20:36:48 / tristan

Helgin sem var að líða... nei... bíddu... jú.. hún erað klárast.. hehe. :)

Já góðir gestir.. vá.. hvað er málið með mig og góðir gestir...??? TAKA TVÖ Gentlemen, me ladies and everybody else that isn’t sitting on a cushion. Today you are all equals, yes, because you are all equally blessed by all being able to read my shit and comment about it… So bloody hell… use your chance… Já... þessar upphafslínur ætti að koma blóðinu í sumum í gang.. Helgin hjá mér var bara nokkuð viðburða lítil... Hanboltaliðið kom í bæinn og maður lét sig ekki vanta... Það var algjört stuð sko.... þetta byrjaði nú ekki alltaf vel hjá stelpunum... en þetta kom allt heim og saman hjá þeim.... ég veit ekki alveg hvað í andskotanum ég á að skrifa hérna... það eina sem gerðist var að ég var í bænum alla helgina að gera mig að algjöru fífli svona einsog vanalega.... Helvíti gaman sko.. ég hef hinsvegar verið að skoða nokkur mál.. ojá.. hvað er málið með það.... ÞAÐ KOMA SIRKA 20-30 manns á þessa síðu daglega.. OG ALDREI ERU NEIN COMMENT... HVAÐ ER MÁLIÐ.. ekki einu sinni um myndirnar sem ég eyddi ógeðslega löngum tíma að reyna að koma heim og saman.. og þetta eru þakkirnar... ;) Endilega skoðið þetta allt saman og segið mér svo hvað ykkur finnst.... ojá.. þið eigið að tjá ykkur um það sem ykkur finnst..... og gerið það þá.. hehe.. Ég skrifa síðan eitthvað ferskt og skemmtilegt hérna á næstunni.. ;) MUNIÐ AÐ LIFA LÍFINU.. þið eigið að njóta þess... þið lifið aðeins einu sinni.. :) Bless í bili.. OVER AND OUT

» 15 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 21:43:16 / tristan

NORÐURFERÐ Í HNOTSKURN!!!!!!

Jæja góðir gestir.. margt og mikið hefur nú gerst síðan ég bloggaði síðast.. ;)

 

Má þar efst nefna Mývatn Open sem við Flygill skelltum okkur á.. og náðum frábærum árangri... við lentum í 8 sæti mem einhverjum fábjánum sem þurftu endilega að fá jafn mörg stig og við.. en hvað um það.. geggjað mót og má benda á myndir sem eru komnar inná www.pedromyndir.is endilega að kíkja á þær....

 

Þetta byrjaði allt með löngum bíltúr og maður komst loksins á áfangastað a.k.a Akureyri rúmlega 7... akúrat tímanlega til að mæta á Söngvakeppnina........ ojá.. maður lét sig ekki vanta. Segja má að ég hafi orðið fyrir talsverðum afföllum... mér var mjög brugðið hvaða atriði voru að taka þátt og ég held að ég megi segja það fyrir hönd allra að siguratriðið hafi komið einsog þruma úr heiðskíru lofti og að það átti ENGINN von á þessu....

 

En nóg um það..... síðan var skellt sér á oddvitan mem Tinnu og Ragnhildi og fleirum þar sem var verið að fagna með Sveinbirni... hann átti afmæli.. ;) og ekki má gleyma því að Úlla Árdal og Tinna eiga afmæli.. allir að muna eftir því... ;)

 

Ég fór í tíu ellefu til að fá mér samloku og endaði með næstum hálfa búðina... og sólglerugu sem voru hreint út sagt HRÆÐILEG... hehe.......

En nóg um það.. ég þurfti síðan að rífa mig á fætur næsta morgun.. nei.. reyndar ekki, en ég var kominn frammúr uppúr sirka 10.. fór og fékk mér subway og eitthvað... fór síðan með Stjána uppí hesthús og sýndi honum Flygill og fórum yfir smáatriðin saman...

Síðan var bara tekið því rólega þennan dag, og maður var bara undirbúinn fyrir daginn sem átti eftir að koma.... ég fór reyndar á oddvitan attur og maður skemmti sér konunglega... keypti mér reyndar engin sólglerugu þetta kvöldið.. en helvíti gaman samt......... Reyndar er ég að gleyma ein MJÖG stóru atriði... ojá.....

 

Ég, Berglind og Stjáni fórum ÖLL saman á SKAUTA.... ÞAÐ VAR GEÐVEIKT GAMAN.. haha.. það eru einmitt einhverjar myndir hérna af því.. það verða síðan komnar fleiri áður en þið vitið af.. ;) Algjör snild og segja má að maður hafi lært fullt af nýjum trickum.. og þó svo að við hefðum verið soldið klaufskir til að byrja með, þá vorum við fljótir að læra... en ég held að ég haldi mér bara á hestunum á ísnum.. ;)

já.. og ekki má gleyma því að ég fór í bíó.. á myndina RENT.. algjör snild....

www.rentmoviesoundtrack.com

 

Laugardagsmorgun - KEPPNISDAGUR.

Ég fór á fætur uppúr 6 til að fara uppí hesthús og gefa og solles... redda ísfjöðrum fyrir mótið og halda sér vakandi reyndist vera erfiðara.. fór síðan niðrá vist og fékk mér morgunmat og þá vaknaði maður svo sannarlega.. og var orðinn bara helvíti ferskur..... ég hringdi í Stjána og Oddnýju sem komu niður úldnari en ALLT... og muna koma myndir af þeim inná bloggið von bráðar.. hehe...... :)

 

Þá var haldið uppí hesthús og sett hrossin uppá kerru...... síðan var haldið af stað... á mývatn......  Veðrið var fínt og stemmningin góð... og ísinn var alveg frábær..

Ég rakst á gamla kunningja einsog Hans Kerjúlf sem í þetta sinn var mættur með Júpíter nokkurn.. og hann sagði að núna mundi ég ekki fá að drulla yfir hann mem yfirferðinni minn frá því í Einarstöðum um sumarið... síðan var Níkólína og Ragnhildur þarna einnig með sína klára.. Snoppu og Ægir, segja má að þær séu alltaf að keppa við hvort annað.. :)

 

Hehe... mótið gekk ljómandi vel og var mikið stuð.. Oddný var reyndar mjög slöpp þannig ákveðið var að halda heim snemma... við tókum Ragnhildi og Dagnýju með okkur heim... ég þurfti reyndar að stoppa og skila litlu systur minni á Vestmanssvatn þar sem þar var haldið Marimba námskeið.. Ungur strákur frá Botsvana... og maður varð nú að leyfa honum að setjast á bak.. ;)

 

Síðan var haldið á AK... og þá byrjaði sko MEGA DJAMM......Berglind var driverinn minn og þakka ég henni kærlega fyrir.. hún er æði... :)

Haldið var í Sjallann á Papana.. og var verið að taka upp myndband sem á að gefa út.. þannig hver veit nema maður komi attur í sjónvarpinu.. ojá...... maður dansaði fram á rauða nótt og helt síðan heom í bólið...

 

Sunnudagurinn var mjög langur og erfiður.. en allt tókst það fyrir rest.. :) Þetta var þá helgarferðin mín norður... myndir munu koma sem fyrst... :)

 

En annars hefur vikan verið mjög afburðalítil... bara verið í skólanum og vinna... ég kem síðan  mem eitthvað ferskt og skemmtilegt... :)

 

Ég bið að heilsa öllum.. heyrumst... tjáið ykkur síðan.. :)

P.s. Stjáni er strákur sem vann mem mér í Saltvík fyrir þá sem ekki vita það.. algjör snillingur.....

P.s.s. VERA DUGLEG OG LIFA LÍFINU.. maður lifir bara EINU SINNI... make the most of it.. and live every day as it were your last one... and one day you'll be right.....

 

P.s.s.s. Það gerðist eitt í vikunni.. sá sem sendi mér eftirfarandi sms af vit.is endilega að gefa sig fram, eða einhver að segja mér um hvaða manneskju það er verið að tala um..... "Vinsamleg skoðun, þú veist um hvern ég er að tala. Ekki láta hana sleppa, hún er þess virði. Try Pie....." Endilega að gefa sig fram og tjá sig... :)

 P.s.s.s.s. Já.. aftur í sjónvarpið.. ´skoðið endilega www.ruv.is/gettubetur

farið í viðureign Versló FSU.. þar er kaglinn.. í myndabandinum hjá FSu..

www.ruv.is

BYÓ


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 12:18:58 / tristan

MYNDIR

Nohh... myndir eru á leiðinni inn á síðuna... ;)

og ég er á leiðinni norður.. Byó


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 18:20:37 / tristan

Kaglinn er að koma Norður.

Læsið öllum hurðum, lokið öllum gluggum og strákar. BINDIÐ GELLURNAR VIÐ RÚMINN ÞVÍ BRESKA KYNTRÖLLIÐ ER AÐ KOMA NORÐUR......... hehe..... Já góðir gestir, þetta er rétt sem þið heyrið ég erað koma norður, en nóg um það.. ég kem að því máli hérna á eftir.. byrjum á vikunni sem var að líða...... Ekki gerðist mikið í síðustu viku en mikill undirbúningur hefur verið með Flygill, hestinn minn þar sem mikið er af mótum frammundan og mikið af þjálfun og fínpússeringum hefur verið okkar aðal þessa dagana.. Síðasta helgi byrjaði með látum..... Föstudagur: Á föstudaginn var mikið æft og pússað því að við Flygill ætluðum að fara og taka þátt í móti sem var haldið hérna á síðastliðinn laugardag... mikið hafði verið æft undir stífri stjórn Olil og segja má að hlutirnir höfðu gengið alvege ljómandi vel fyrir sig.. maður fór snemma í rúmmið þetta kvöld, eftir að hafa eytt öllum deginum í að þjálfa og ríða út..... Laugardagur: Þá var komið að því..... Mótsdagur... hehe... Við Flygill vorum í vanta stuði og segja má að við höfðum komið, séð og sigrað.. Já, góðir gestir... FYRSTA GULLIÐ OKKAR VAR KOMIÐ Í HÚS OG FÖGNUÐURINN LEYNDI SÉR EKKI............ ÉG OG FLYGILL EYDDUM LÖNGUM STUNDUM Í FAÐMLÖGUM INNÁ HESTHÚSI OG VAR ÉG ROSA ÁNÆGÐUR...... Var feðr minni síðan haldið í RVK þar sem ég hafði planað að hitta nokkra kunningja mína.. Nánar tiltekið Kittu frá Húsavík, Arney og Elínu... var geggjað stuð hjá okkur... ég endaði síðan með félaga mínum honum Símoni a.k.a Simma í partýi í hafnafirðinum....... ok segja má að það hafi verið svaka stuð.. komst ég að því seinna að stelpurnar sem við vorum að djamma með eiga eina vinsælustu bloggsíðu á landinu........ www.blog.central.is/skruddur Mæli endregið með því að skoða... ;) Sunnudagur: Dagurinn var tekinn með ró og næði þar sem mikið hafði gengið á um kvöldið á Laugardeginum.. og segja má að maður hafi eiginlega veikst eftir þetta glens og grín..... síðan... maður hélt heim á Selfoss þar sem maður lét fara vel um sig........ Mánudagur - Þriðjudagur..... Já... segja má að ekki hafi dregið mikið til tíðinda þessa daga þar sem maður lág í rúmminu og horfði á Jurasic Park 1, 2 og 3... kannski svona 6 sinnum hver... hehe.. Dagurinn í dag... Miðvikudagur... LOKSINS LOKSINS... maður mætti ferskur í skólann og var fínn dagur þar.. síðan kemur aðalkaflinn.. Já góðir gestir.. á morgun.... er kaglinn á leiðinni Norður.. VIÐ FLYGILL ÆTLUM AÐ REYNA AÐ SJÁ HVERNIG ÍSINN Á MÝVATNI FER MEÐ OKKUR.... Ég legg af stað á morgun uppúr 1 og vonast til að vera kominn á Ak um kvöldið... og þá hefst sko djamm og sjúss.. haha.. já... ég mun vera mættur á svæðið... ;) Einsog þið sjáið er ég að vinna í því að koma upp einhverjum myndum hérna líka... og bráðum er þetta allt að farað gerast.... En já... ég mæti á morgun og verður mikið glens og grín....... VERÐ Í BANDI... BLESS.......

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2